Sjúkdómar, breytingar í aldurssamsetningu þjóða og ýmis heilbrigðisvá af völdum manna og náttúru er stöðug áskorun fyrir samfélagið. Fuglaflensa og mögulegur heimsfaraldur inflúensu er nærtækt dæmi um það. Þörf á nýjum meðferðarúrræðum og óskir um framfarir á sviði læknavísinda hafa því aldrei verið meiri. Á þessum vettvangi er GlaxoSmithKline í fararbroddi.
GlaxoSmithKline hefur einnig lagt áherslu á að rannsaka og þróa lyf eða bóluefni gegn sjúkdómum sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) skilgreinir sem forgangsverkefni, þ.e. alnæmi (HIV), berklum og malaríu.
Það er mikilvægt fyrir heilsu og heilbrigði að hafa skilning á sjúkdómum, orsökum þeirra og meðferð. Smellið á bæklingana hér að neðan til að fá upplýsingar um mismunandi sjúkdóma og meðferðarúrræði. Hafið ávallt samband við lækni til að ræða persónuleg heilsufarsvandamál.