Ísland

Ferðalangar og lifrarbólga

Lifrarbólga er meðal alvarlegustu sjúkdóma sem ferðalangar geta smitast af á ferðalögum erlendis. Sýking af lifrarbólguveiru leiðir til mikillar bólgu í lifur og það getur tekið langan tíma, mánuði og jafnvel ár, að ná sér að fullu.

Það er hægt að verja sig gegn lifrarbólgu með bólusetningu og með því að kynna sér smitleiðir lifrarbólgu og hvernig beri að varast sýkingu á ferðalögum erlendis, þar sem þessir sjúkdómar eru landlægir.

Sjá nánari upplýsingar: Ferðamannaheilsuvernd og bólusetningar

Útbreiðsla lifrarbólgu A og B

Útbreiðsla lifrarbólgu A

Útbreiðsla lifrarbólgu A í heiminum. Rauð landssvæði eru með mikla útbreiðslu. Gul landssvæði eru með nokkra útbreiðslu og blá landssvæði eru með litla útbreiðslu.

Útbreiðsla lifrarbólgu B

Útbreiðsla lifrarbólgu B í heiminum. Rauð landssvæði eru með mikla útbreiðslu. Gul landssvæði eru með nokkra útbreiðslu og blá landssvæði eru með litla útbreiðslu.