GlaxoSmithKline heimilar þér hér með að afrita, en aðeins ef það er ekki í ábataskyni, efni sem fyrirtækið birtir á þessum vefsíðum, svo fremi að sérhvert afrit sem þú tekur af því efni beri allar tilkynningar um höfundarétt og annan eignarrétt sem og sérhverja ábyrgðartakmörkun sem í þeim eru og á þessum vefsíðum.
Ekkert sem hér er skal túlkast þannig að það veiti, með því að gefa í skyn, með lagahindrun eða með nokkrum öðrum hætti, leyfi eða rétt samkvæmt nokkru einkaleyfi eða vörumerki GlaxoSmithKline eða nokkurs þriðja aðila. Nema annað sé tekið sérstaklega fram hér að ofan, skal ekkert það sem fram kemur hér túlkast þannig að það veiti nokkurt leyfi eða rétt sem felst í höfundarétti GlaxoSmithKline.
Vörumerki og þjónustumerki sem GlaxoSmithKline á eða hefur leyfi fyrir eru afmörkuð frá textanum umhverfis og birtast skáletruð, feitletruð eða eingöngu í hástöfum, t.d.Seretide.
GlaxoSmithKline telur sig ekki eiganda að, né tengjast á nokkurn hátt neinu vörumerki þriðja aðila sem birtist á þessum vefsíðum. Slík vörumerki þriðja aðila eru eingöngu notuð til að merkja vörur og þjónustu viðkomandi eigenda þeirra og ekki skal túlka notkun þeirra þannig að í því felist nokkur styrkur eða ábyrgð af hálfu GlaxoSmithKline.