Ísland

Samstarf við sjúklingasamtök

Hagsmunir lyfjafyrirtækja og sjúklingasamtaka fara oft saman. Mikilvægt er að þessi samskipti fari fram á gegnsæjan hátt og samkvæmt þeim siðferðilegu viðmiðum sem samfélagið setur.

GSK hefur skuldbundið sig til að starfa með samtökum sjúklinga og aðstandenda með þessum hætti. Fyrirtækið telur að forsenda samstarfs, og undirstaða trúverðugleika og sjálfstæðis aðila, sé gagnkvæmt traust og gegnsæi í samskiptum.

GlaxoSmithKline er aðili að Frumtökum, samtökum framleiðenda frumlyfja á Íslandi og evrópskum samtökum lyfjaframleiðenda, EFPIA. Þessi samtök hafa samþykkt starfsreglur um samskipti lyfjafyrirtækja og samtaka sjúklinga.

Þessar reglur eru grundvallaðar á eftirfarandi meginreglum sem EFPIA, ásamt samtökum sjúklinga í Evrópu, uppfærði síðast í september 2006.

  1. Sjálfstæði samtaka sjúklinga skal vera tryggt.
  2. Samstarf samtaka sjúklinga og lyfjafyrirtækja skal byggjast á gagnkvæmri virðingu þar sem viðhorf og ákvarðanir beggja hafa jafn mikið gildi.
  3. Lyfjafyrirtæki skulu hvorki fara fram á að samtök sjúklinga taki að sér kynningu á tilteknu lyfseðilskyldu lyfi né skulu samtök sjúklinga taka slíkt að sér.
  4. Markmið og umfang samstarfs skal vera gegnsætt. Fjárhagsleg aðstoð og annar stuðningur lyfjafyrirtækja skal alltaf vera skýrt viðurkenndur.
  5. Lyfjafyrirtæki eru hlynnt því að samtök sjúklinga fái fjárstuðning frá sem flestum aðilum.

Hér finnur þú yfirlit yfir hvaða sjúklingasamtökum GSK hefur veitt stuðning og upplýsingar um styrkupphæðir. Þessar upplýsingar verða framvegis uppfærðar árlega.

2007

2008