Ísland

Rannsóknir og þróun

GlaxoSmithKline starfrækir meira en 20 rannsóknarsetur í 11 löndum. Þar starfa meira en 15.000 vísindamenn. Á hverjum degi ver fyrirtækið rúmlega 1 milljarði til rannsókna og þróunar - um 40 milljónum á hverri klst. Áætlað er að þróun nýs lyfs kosti að jafnaði meira en 65 milljarða og er meðal þróunartími nýs lyfs 12 ár.

 

Lyfjaframleiðsla

Á vegum GlaxoSmithKline eru starfræktar 80 lyfjaverksmiðjur í 37 löndum. Í þeim starfa meira en 37.000 starfsmenn. Á ári hverju framleiða þessar verksmiðjur nærri 4 milljarða pakka af meira en 1400 vörumerkjum. Vörum fyrirtækisins er dreift á 191 markaðssvæði um allan heim.

Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar um rannsóknir og lyfjaþróun á vegum GlaxoSmithKline.

Hjá GlaxoSmithKline starfa yfir 100 000 starfsmenn í 117 löndum. Markmið fyrirtækisins er að þróa lyf og heilsuvörur sem gera fólki kleift að áorka meiru, líða betur og lifa lengur.