Saga GlaxoSmithKline
Að baki GlaxoSmithKline er löng hefð rannsóknar og nýsköpunar. Uppruna fyrirtækisins má rekja til starfa frumkvöðla á nítjándu öld sem leiddu af sér vöxt og viðgang mismunandi fyrirtækja sem sameinast í GlaxoSmithKline. Í sögu fyrirtækisins er að finna nokkrar glæstustu uppgötvanir í lyfja- og læknisfræði og þess má geta að fimm vísindamenn hjá fyrirtækinu hafa fengið Nóbelsverðlaun fyrir störf sín. Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um sögu fyrirtækisins.

