Ísland

Samstarf við sjúklingasamtök 2008

ADHD samtökin

ADHD samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir, sem og fjölskyldum þeirra. ADHD stendur fyrir Attention Deficit Hyperactivity Disorder sem er alþjóðleg skammstöfun fyrir athyglisbrest og ofvirkni. Yfir 1000 félagsmenn eru í samtökunum. Samtökin voru stofnuð 7. apríl 1988 og þá undir nafninu Foreldrafélag misþroska barna.

Styrkur GSK til ADHD samtakanna árið 2008 var að andvirði kr. 5.000

HIV – Ísland

HIV Ísland alnæmissamtök voru stofnuð 5.desember 1988. Samtökin voru stofnuð til að auka þekkingu og skilning á alnæmi og að styðja sjúka og aðstandendur þeirra.

Samtökin HIV-Ísland hafa staðið fyrir fræðslu- og forvarnarátaki sem beinist að 9. og 10 bekkingum í öllum grunnskólum landsins . Landlæknisembættið og GlaxoSmithKline eru aðalstyrktaraðilar átaks samtakanna fyrir þennan aldurshóp.

Styrkur GSK til HIV-Ísland árið 2008 var að andvirði kr. 373.000

Astma- og ofnæmisfélagið

Astma- og ofnæmisfélagið var stofnað 1974 til að berjast fyrir hagsmunum þeirra sem eru með astma og ofnæmi. Félagið leggur áherslu á fræðslu og þjónustu við félagsmenn sína. Heldur fræðslufundi, gefur út fréttablöð og bæklinga. Félagið talar máli sjúklinga með astma og ofnæmi við yfirvöld heilbrigðismála, kennslumála og aðra áhrifahópa í þjóðfélaginu.

Astma- og ofnæmisfélagið er aðildarfélag Sambands Íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, SÍBS, sem hefur þann tilgang m.a. að sameina innan vébanda sinna fólk með berkla, hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma, astma- og ofnæmi og svefnháðar öndunartruflanir og vinna að því að heilbrigðisþjónusta og félagsleg aðstaða þessa fólks sé sem fullkomnust.

Styrkur GSK til Astma og ofnæmisfélagsins árið 2008 var að andvirði kr. 360.000

Blindrafélagið

Blindrafélagið er fyrst og fremst hagsmunafélag blinds og sjónskerts fólks á Íslandi. Félagsmenn þess eru um 500 talsins, á öllum aldri og búsettir um allt land. Aðsetur þess er í Hamrahlíð 17 í Reykjavík og þar rekur það ýmis konar starfsemi.

Blindrafélagið starfar að hagsmunamálum blinds og sjónskerts fólks í víðum skilningi, stuðlar að réttarbótum og er hinu opinbera til ráðuneytis um stefnumótun í málaflokknum.

Styrkur GSK til Blindrafélagsins árið 2008 var að andvirði kr. 5.000

Félag nýrnasjúkra

Félag nýrnasjúkra var stofnað 1986 og er markmið félagsins að styðja alla þá sem veikjast af langvinnum nýrnasjúkdómum og aðstandendur þeirra.

Styrkur GSK til Félags nýrnasjúkra árið 2008 var að andvirði kr. 50.000

Geðhjálp

Geðhjálp var stofnað 9.október 1979 og er félag þeirra sem þurfa eða hafa þurft aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra, og annarra sem láta sig geðheilbrigðismál varða. Tilgangur félagsins er að bæta hag þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða svo og aðstandenda þeirra.

Styrkur GSK til Geðhjálpar árið 2008 var að andvirði kr. 15.000

Geðvernd

Styrkur GSK til Geðverndar árið 2008 var að andvirði kr. 15.000

Hjartaheill

Landssamtök hjartasjúklinga voru stofnuð 8. október 1983. Stofnfélagar voru 230, flestir hjartasjúklingar, vandamenn þeirra og velunnarar, en einnig voru þar læknar og hjúkrunarfólk. Árið 2004 var nafni samtakanna breytt í Hjartaheill, landssamtök hjartasjúklinga.

Hjartaheill er aðildarfélag Sambands Íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, SÍBS (www.sibs.is) , sem hefur þann tilgang m.a. að sameina innan vébanda sinna fólk með berkla, hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma, astma- og ofnæmi og svefnháðar öndunartruflanir og vinna að því að heilbrigðisþjónusta og félagsleg aðstaða þessa fólks sé sem fullkomnust.

Styrkur GSK til Hjartaheilla árið 2008 var að andvirði kr. 28.000

Íþróttasamband fatlaðra

ÍÞRÓTTASAMBAND FATLAÐRA Í.F. er stofnað 17. maí 1979 og er eitt af 21 sérsambandi innan ÍSÍ. Öll félög innan Í.S.Í. er iðka, æfa og keppa í íþróttum fatlaðra eru aðilar að Í.F.

Hlutverk Í.F. er:

  1. Að hafa yfirumsjón með þeim íþróttagreinum sem fatlaðir stunda á Íslandi
  2. Að annast útbreiðslu- og fræðslustarf varðandi íþróttir fatlaðra
  3. Að vera fulltrúi Íslands varðandi erlend samskipti er tengjast íþróttamálum fatlaðra
  4. Að gæta hagsmuna allra þeirra fötlunarhópa sem eru innan Í.F.
Styrkur GSK til Íþróttasambands fatlaðra árið 2008 var að andvirði kr. 20.000

Krabbameinsfélagið

Krabbameinsfélag Íslands var stofnað 27. júní 1951. Þá voru aðildarfélögin þrjú en nú eru þau 30, bæði svæðafélög og stuðningshópar sjúklinga. Samkvæmt 2. grein laga Krabbameinsfélags Íslands er tilgangur félagsins að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameini, svo sem með því að:

  1. Stuðla að þekkingu og menntun um krabbamein og krabbameinsvarnir.
  2. Efla krabbameinsrannsóknir, m.a. með söfnun og vísindalegri úrvinnslu upplýsinga.
  3. Beita sér fyrir leit að krabbameinum á byrjunarstigi.
  4. Styðja framfarir í meðferð krabbameina og umönnun krabbameinssjúklinga.

Styrkur GSK til Krabbameinsfélagsins árið 2008 var að andvirði kr. 399.289

Kraftur, stuðningsfélag

Stuðningsfélagið Kraftur er fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.

Styrkur GSK til Krafts árið 2008 var að andvirði kr. 25.000

Lauf, Landssamtök áhugafólks um flogaveiki

Lauf, Landssamtök áhugafólks um flogaveiki, var stofnað í mars árið 1984. Í samtökunum er fólk með flogaveiki, fjölskyldur þeirra, vinir, heilbrigðisstarfsfólk og aðrir sem hafa áhuga á málefnum fólks með flogaveiki.

Markmið félagsins eru að;

  • Standa vörð um hagsmuni fólks með flogaveiki.
  • Annast fræðslu á flogaveiki og málefnum fólks með flogaveiki.
  • Bæta félagslega aðstöðu og auka lífsgæði fólks með flogaveiki.
  • Auka skilning almennings á flogaveiki til að minnka hræðslu og eyða fordómum.
  • Fólk viti hvað flogaveiki er, hvernig á að, bregðast við henni og hvað beri að varast.

Styrkur GSK til Laufs árið 2008 var að andvirði kr. 210.298

Lind – félag um meðfædda ónæmisgalla

Lind - Félag um meðfædda ónæmisgalla var stofnað 11. maí 2002 af einstaklingum með meðfædda ónæmisgalla, aðstandendum þeirra og áhugafólki. Markmið félagsins eru meðal annars að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla og annast fræðslu á meðfæddum ónæmisgöllum og málefnum þeim tengdum.

Styrkur GSK til Lindar árið 2008 var að andvirði kr. 25.000

Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.

Styrkur GSK til Ljóssins árið 2008 var að andvirði kr. 18.000

Mígren-samtökin

Styrkur GSK til Mígren-samtakanna árið 2008 var að andvirði kr. 55.000

MND félag Íslands

Hlutverk félagsins er að vinna að velferð þeirra sem haldnir eru MND (motor neurone disease)- hreyfitaugahrörnun.

Styrkur GSK til MND félagsins árið 2008 var að andvirði kr. 10.000

MS – félag Íslands

MS félagið var stofnað 20. september árið 1968. Tilgangur félagsins er að veita aðstoð þeim sjúklingum, sem haldnir eru mænu- og heilasiggi (Multiple Sclerosis).

Styrkur GSK til MS-félagsins árið 2008 var að andvirði kr. 20.000

Neistinn - styrktarfélag hjartveikra barna

Markmið Neistans er m.a. að auðvelda aðgengi foreldra að upplýsingum sem snúa að hjartasjúkdómum barna og hjartagalla, meðferð þeirra, réttindi fjölskyldunnar og mannlega þáttinn. Enn fremur að kynna starfsemi félagsins, Styrktarsjóð Neistans ásamt helstu sjúkrastofnanir sem sinna hjartveikum börnum hér heima og erlendis

Styrkur GSK til Neistans árið 2008 var að andvirði kr. 34.000

Parkinsonssamtökin

Parkinsonssamtökin á Íslandi voru stofnuð árið 1983 og er markmið þeirra að aðstoða sjúklinga og aðstandendur við að leysa úr þeim vanda og erfiðleikum sem sjúkdómnum fylgja, dreifa upplýsingum, veita fræðslu og styðja við rannsóknir vegna parkinsonsveiki, vera vettvangur umræðu um sameiginleg vandamál félagsmanna, halda reglulega félagsfundi til skemmtunar og fræðslu, gefa út rit félagsins og halda úti vefsíðu til að miðla upplýsingum og fræðslu.

Styrkur GSK til parkinsonssamtakanna árið 2008 var að andvirði 25.000, auk vinnuframlags við samningu fræðslubæklings um Parkinsonsveiki – mataræði og lyf.

Samband Íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, SÍBS

Samband Íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, SÍBS, hefur þann tilgang m.a. að sameina innan vébanda sinna fólk með berkla, hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma, astma- og ofnæmi og svefnháðar öndunartruflanir og vinna að því að heilbrigðisþjónusta og félagsleg aðstaða þessa fólks sé sem fullkomnust.

Styrkur GSK til SÍBS árið 2008 var að andvirði kr. 330.000

Samtök lungnasjúklinga

Markmið samtakana er að vinna að velferðar- og hagsmunamálum lungnasjúklinga og þeim markmiðum hyggjast samtökin ná með því að; halda uppi öflugri félagsstarfsemi; stuðla að fræðslu á lungnasjúkdómum og afleiðingum þeirra; efla forvarnarstarf og vinna að ráðgjöf og upplýsingamiðlun varðandi réttindi lungnasjúklinga.

Yfir vetrarmánuðina halda samtökin fræðslufundi þar sem fjallað er um málefni er varða sjúkdóma og almenna velferð lungnasjúklinga. Tilgangurinn er ekki síður að gefa aðstandendum breiðari, betri og vonandi nýja sýn.

Samtök lungnasjúklinga er aðildarfélag Sambands Íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, SÍBS (www.sibs.is), sem hefur þann tilgang m.a. að sameina innan vébanda sinna fólk með berkla, hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma, astma- og ofnæmi og svefnháðar öndunartruflanir og vinna að því að heilbrigðisþjónusta og félagsleg aðstaða þessa fólks sé sem fullkomnust.

Styrkur GSK til samtaka lungnasjúklinga árið 2008 var að andvirði kr. 271.921

Samtök psoriasis og exemsjúklinga (Spoex)

SPOEX er líknarfélag sem stofnað var þann 15. nóvember 1972. Markmið félagsins er fyrst og fremst að gæta réttar sjúklinganna og stuðla að betra og ríkara lífi þeirra með fræðslustarfsemi og kynningu á sjúkdómunum.

Styrkur GSK til Spoex árið 2008 var að andvirði kr. 30.000

Samtök sykursjúkra

Samtök sykursjúkra voru stofnuð 25. nóvember 1971. Slík samtök hafa verið starfandi víða um heim um áratuga skeið unnið sykursjúkum ómetanlegt gagn. Samtökin eru aðilar að Norrænu og alþjóðlegu samstarfi. Tilgangur samtakanna er samkvæmt lögum þeirra:

  1. Að halda uppi fræðslu um sykursýki
  2. Að vinna að því að komið verði á fót sérhæfðri lækningastöð fyrir sykursjúka með sérmentuðu starfsliði.
  3. Að bæta félagslega aðstöðu sykursjúkra

Styrkur GSK til Samtaka sykursjúkra árið 2008 var að andvirði kr. 42.000

Sjálfsbjörg

Hlutverk Sjálfsbjargar er meðal annars; að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra, á öllum sviðum þjóðlífsins, með því að hafa áhrif á ríkis- og sveitarstjórnir, hagsmunasamtök og einstaklinga og með því að vekja áhuga almennings á málefnum þeirra með útgáfu og kynningarstarfsemi

Styrkur GSK til Sjálfsbjargar árið 2008 var að andvirði kr. 13.500

Sjónarhóll - ráðgjafarmiðstöð ses.

Að Sjónarhóli- ráðgjafarmiðstöð ses. standa eftirfarandi samtök:

  • ADHD samtökin
  • Landssamtökin Þroskahjálp
  • Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
  • Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum

Með stofnun Sjónarhóls rætist margra ára draumur um faglega og óháða ráðgjöf fyrir aðstandendur barna sem eiga við langvarandi veikindi og fötlun að stríða.

Sjónarhóll verður miðpunktur þjónustu á þessu sviði, þekkingartorg þar sem hægt verður að finna á einum stað yfirgripsmikla vitneskju og reynslu sem hingað til hefur verið dreifð um borg og bæi.

Styrkur GSK til Sjónarhóls árið 2008 var að andvirði kr. 20.000

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna var stofnað 2. september 1991 af foreldrum barna með krabbamein. Markmiðið með stofnun félagsins var m.a. að styðja við bakið á þeim og aðstandendum þeirra bæði fjárhagslega og félagslega.

Styrkur GSK til Félags krabbameinssjúkra barna árið 2008 var að andvirði kr. 36.000

Styrktarsjóðurinn ÞÚ GETUR!

ÞÚ GETUR! er sjóður til styrktar þeim sem eiga við geðræna vanlíðan að stríða. Markmið sjóðsins eru að styrkja þá til náms sem átt hafa við geðræn veikindi að stríða, að efla nýsköpun og bætta þjónustu við geðsjúka á sviði fræðslu og forvarna og að stuðla að umræðu og aðgerðum sem draga úr fordómum í samfélaginu.

Styrkur GSK til styrktarsjóðsins ÞÚ GETUR árið 2008 var að andvirði kr. 50.000