GSK leggur sitt af mörkum til heilsu kvenna
Heilsa kvenna í Evrópu
Konur eru rúmur helmingur íbúa hvers lands. Tíðni ýmissa sjúkdóma er hærri hjá konum en hjá körlum á meðan aðrir sjúkdómar hafa mismunandi áhrif á kynin.
GSK bætir við það úrval lyfja og bóluefna sem nú stendur til boða með því að setja á markað nokkrar tímamótameðferðir við sjúkdómum sem hafa sérstaklega áhrif á konur, til að mynda brjóstakrabbamein, leghálskrabbamein og beinþynning. Að auki tökum við þátt í samfélagsþjónustu og efnum til samstarfs og samvinnu víða um heim. Við höfum einnig tekið þátt í að útvega tækjakost og lyf til að bæta heilsu kvenna þar sem heilbrigðisþjónustu er ábótavant.
Brjóstakrabbamein
Brjóstakrabbamein er algengasta tegund krabbameins hjá konum. Í Evrópu fer dánartíðni af völdum brjóstakrabbameins lækkandi, einkum í löndum á borð við Bretland og Þýskaland. Þennan árangur má þakka reglulegu eftirliti, því að gripið er snemma til skurðaðgerða sem og nýjum lyfjameðferðum.
GSK kynnti nýlega niðurstöður rannsókna á brjóstakrabbameinslyfinu Tyverb sem vakið hafa vonir um árangur. Tyverb er sérstaklega ætlað konum með brjóstakrabbamein sem myndað hafa meinvörp. Klínískar tilraunir á öryggi og árangri Tyverb gefa til kynna að lyfið sé gagnleg viðbót við meðferð brjóstakrabbameins þar sem meinvörp hafa myndast í heila.
Leghálskrabbamein
Leghálskrabbamein er önnur algengasta tegund krabbameins meðal kvenna um heim allan og leggst á konur í blóma lífsins. Í Evrópu er leghálskrabbamein alvarlegt lýðheilsuvandamál: 60 þúsund konur greinast með leghálskrabbamein á ári hverju og 30 þúsund konur deyja úr meininu. Í flestum tilfellum greinast konur með leghálskrabbamein á milli þrítugs og fimmtugs, á sama tíma sem þær eru önnum kafnar við að byggja upp starfsferil sinn, hugsa um fjölskyldu eða hvort tveggja. Í löndum þar sem krabbameinsleit er vel skipulögð hefur tíðni leghálskrabbameins lækkað snarlega. Með leitinni einni og sér er þó ekki hægt að finna allar forstigsbreytingar eða komið í veg fyrir leghálskrabbamein. GSK hefur þróað bóluefnið Cervarix sem verndar konur fyrir leghálskrabbameini. Bóluefnið er þróað til að koma í veg fyrir sýkingu og forstigsbreytingar sem HPV-veiran orsakar, sérstaklega gerðir 16 og 18. Sótt var um skráningu á bóluefninu í mars 2006 en það hlaut markaðsleyfi í allflestum Evrópulöndum á haustmánuðum 2007.
Beinþynning
Beinþynning er einn algengasti sjúkdómur heims og sá sem veldur hvað mestum örkumlum. Hann hefur áhrif á 75 milljónir manna í Evrópu, Bandaríkjunum og í Japan. Í Evrópu verða beinbrot af völdum beinþynningar á þrjátíu sekúndna fresti.
Beinþynning veldur því að beinin verða stökk og viðkvæm og aukast því líkur á beinbroti. Þriðjungur kvenna, sem náð hefur fimmtugsaldri, þjáist af beinþynningu. Lyfið Bonviva, sem þróað er af GSK og Roche, styrkir beinin og dregur úr brotahættu. Bonviva kemur í töfluformi, tekið einu sinni í mánuði og sem stungulyf í æð sem gefið er fjórum sinnum á ári.
Margir sjúklingar lenda í erfiðleikum með meðferðina gegn beinþynningu, en tveir af hverjum þremur sjúklingum í vikulegri meðferð hætta henni innan eins árs. Með því að bjóða upp á mánaðartöflu, bætir Bonviva meðferðarheldni og minnkar líkur á beinbroti.
Heilsa kvenna í fyrirrúmi
Við vinnum að því að styrkja konur, draga úr barnadauða og bæta heilsu barnshafandi kvenna með samfélagsverkefnum okkar. Dæmi um það eru:
Heilsugæsla í barnaathvörfum á Spáni
Mensajeros de la Paz verkefnið aðstoðar innflytjendur á unglingsaldri sem þurfa að sjá fyrir ungum börnum. Þeim er séð fyrir heilsugæslu og foreldraþjálfun og er veitt húsaskjóli steðji að þeim hætta önnur en fátækt. Verkefnið er tvíþætt: Rekstur átta heimilisskýla sem ætluð eru ungu fólki sem hefur verið misnotað eða yfirgefið og Barnamiðstöðin í Madríd sér um læknaþjónustu og félagslega aðlögun fyrir ungar mæður og börn þeirra í gegnum menntaverkefni sem kallast „Þekktu barnið þitt“.
Að draga úr tíðni smits á HIV/eyðni frá móður til barns í Kenýa
Árið 2007 hófst verkefni í Kenýa sem miðar að því að bæta heilsugæslu og þjónustu í tengslum við HIV og eyðni. Heilsugæslustarfsfólk á yfir 60 stöðum er sérþjálfað auk þess að nýta stuðning innan samfélagsins og frá samfélagsverkefnum til að draga úr fordómum og mismunun. Áhersla verður lögð á að fjölga þeim konum sem hljóta meðferð sem kemur í veg fyrir að þær smiti börn sín og einnig á að auka við barnalæknaþjónustu.
Um alla Evrópu
Árið 2006 viðurkenndu heilbrigðisráðherrar innan Evrópusambandsins formlega þörfina á að leggja áherslu á heilsu kvenna. Við bregðumst við þessari yfirlýsingu með því að einbeita okkur að þróun nýrra bóluefna og meðferða auk þess að leggja áherslu á samfélagsverkefni til að bæta heilsu kvenna í Evrópulöndum.
Lykilstaðreyndir
• Markmið okkar er að bæta lífsgæði með því að gera fólki kleift að áorka meiru, líða betur og lifa lengur
• Við erum frumlyfjafyrirtæki sem starfar á rannsóknargrunni. Við verjum átta milljónum evra daglega í rannsóknir og þróun – eða 435.000 evrum á klukkustund
• Í rannsóknarliði okkar eru 15.000 manns sem vinna að því að þróa ný lyf
• Við kembum um 65 milljónir efnasambanda á ári hverju í leit okkar að nýjum lyfjum
Bæklingur á pdf-formi:

