Hér getur þú fundið almennar upplýsingar um inflúensu og fræðst um þær aðgerðir sem GSK hefur gripið til vegna inflúensu, hvort sem um er að ræða árstíðabundna inflúensu eða heimsfaraldur inflúensu.
Fyrirtækið hefur þróað nokkrar meðferðir sem nýtast í baráttunni gegn bæði árstíðabundinni inflúensu og heimsfaraldri inflúensu. Þar má nefna veirulyfið Relenza (zanamivír), ýmsar tegundir bóluefna og nýja tækni við bólusetningar, s.s. notkun nýrra efna sem efla ónæmissvar (ónæmisglæða).
Hérlendis vinnur GSK náið með Landlæknisembættinu og á alþjóðavettvangi með Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), Sóttvarnaeftirliti Bandaríkjanna og Sóttvarnamiðstöð Evrópu. Þessi samvinna beinist bæði að baráttunni við árstíðabundna inflúensu og því að öðlast betri skilning á nýjum stofnum sem gætu valdið heimsfaraldri, s.s. fuglaflensuveirunni (H5N1) og nýjum stofni inflúensu A (H1N1), sem kenndur hefur verið við svínainflúensu.