GSK.is - forsíða GlaxoSmithKline
astma og ofnæmisvefur

astmi  |  » frjókornaofnæmi  |  fæðuofnæmi  |  barnaexem
gsk.is

Hvað er frjókornaofnæmi?
 · Hvaða frjókorn valda ofnæmi?
 · Hvernig má greina frjókornaofnæmi?
 · Augneinkenni vegna frjókornaofnæmis
 · Góð ráð gegn frjókornaofnæmi
 · Lyfjameðferð gegn frjókornaofnæmi
 · Fræðslubæklingur um frjókornaofnæmi
 · Frekari upplýsingar


astma og ofnæmisfélagið
Astma- og ofnæmisfélagið
Hvað er frjókornaofnæmi?

Frjókornaofnæmi er eitt algengasta ofnæmið sem kemur fram í nefi og augum. Ástæðan er ofnæmi fyrir grasi, birki eða súrum þ.e. frjókornum frá gróðri. Einkennin koma yfirleitt fram á sama tíma á hverju ári og sumum reynist erfitt að greina milli svokallaðs sumarkvefs og frjóofnæmis. Margir þjást af ítrekuðu kvefi á hverju sumri áður en þeir átta sig á því að um frjókornaofnæmi er að ræða. Reynið því að átta ykkur á því hvort hugsanleg tengsl geti verið milli einkenna og gróðurs í kringum ykkur.

Eitt helsta einkenni frjókornaofnæmis og það margir finna fyrst fyrir, er kláði í augum. Aðeins örfá frjókorn í loftinu geta framkallað augnkláða. Augun verða rauðsprengd og það rennur úr þeim.

Fyrstu einkenni frá nefi eru síendurteknir hnerrar. Önnur einkenni sem miklum óþægindum valda er kláði í nefinu, sem oft veldur svokallaðri ofnæmiskveðju, nefnuddi og grettum sem geta verið býsna spaugilegar. Þá fer að renna stöðugt úr nefinu, sem þýðir að vasaklúturinn er sífellt á lofti. Einnig getur nefið stíflast eða slímhúð þrútnað svo að erfitt verður að draga andann gegnum nefið.

Nauðsynlegt er að hafa í huga að frjókornaofnæmi getur oft valdið astmaeinkennum.

Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline



Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki