GSK.is - forsíða GlaxoSmithKline
astma og ofnæmisvefur

astmi  |  frjókornaofnæmi  |  » fæðuofnæmi  |  barnaexem
gsk.is

Hvað er fæðuofnæmi og fæðuóþol?
 · Orsakir
 · Nokkur atriði varðandi mataræði
 · Fræðslubæklingur um fæðuofnæmi
 · Frekari upplýsingar


astma og ofnæmisfélagið
Astma- og ofnæmisfélagið
Orsakir fæðuóþols og fæðuofnæmis

Þau efni í fæðu sem einkum valda ofnæmi eru prótein eða eggjahvítuefni. Þessi efni geta valdið því að líkaminn myndar mótefni og kallar neysla þeirra þá fram ofnæmisviðbrögð í líkamanum.

Helstu fæðutegundir sem geta valdið ofnæmismyndun eru:

  • egg
  • mjólk
  • fiskur
  • soja
  • sítrusávextir
  • rúgmjöl og hveiti
  • baunir og jarðhnetur.
Auk fyrrgreindra efna geta eftirtalin efni valdið fæðuóþoli:
  • bætiefni ýmiskonar
  • rotvarnarefni
  • litarefni
  • nikkel
Sumir telja að öll svokölluð E-efni séu bætiefni eða rotvarnarefni, en ekki má setja þau öll undir sama hatt hvað varðar fæðuóþol.

Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline



Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki