Ísland

Ungbarnabólusetningar

Gegn hvaða sjúkdómum eru börn bólusett á Íslandi?

Eftirfarandi textar eru fengir af vef Landlæknisembættisins

Barnaveiki (Diphtheria)

Barnaveiki er sjúkdómur sem baktería veldur. Helstu einkenni eru svæsin hálsbólga með myndun skána, en sjúkdómurinn getur orðið mjög alvarlegur og leitt til dauða. Bakterían framleiðir eitur sem berst út í blóðið. Þetta eitur er skaðlegt vefjum svo sem hjartavöðva. Sýklalyf drepa bakteríuna, en koma ekki í veg fyrir eituráhrifin. Því er bólusetning eina vörnin gegn sjúkdómnum. Barnaveiki er mjög sjaldgæf nú á dögum vegna þess hve öflug og víðtæk bólusetningin er gegn henni.

Stífkrampi (Tetanus)

Stífkrampi stafar af bakteríu sem er til staðar víða í náttúrunni, svo sem í jarðvegi og húsdýraskít. Auðvelt er að smitast af óhreinindum sem komast í sár. Bakterían framleiðir eitur sem hefur áhrif á vöðva með herpingi og stífni sem getur leitt til dauða ef ekkert er að gert. Til er móteitur sem virkar ef nægilega fljótt er gripið til þess, en eina örugga vörnin er bólusetning.

Kikhósti (Pertussis)

Kikhósti stafar af bakteríu sem framleiðir eiturefni. Bakterían er mjög smitandi og berst milli manna með úðasmiti. Einkennin eru í fyrstu vægt kvef, síðan vaxandi hósti, slímsöfnun og slæm hóstaköst sérstaklega á næturnar. Sjúkdómurinn er bæði erfiður og langdreginn og getur verið lífshættulegur ungbörnum. Þau fá áköf hóstaköst með einkennandi soghljóði. Sýklalyf gera lítið gagn, nema mjög snemma á sjúkdómsferlinum. Með bólusetningum er hægt að verja börnin og er mikilvægt að byrja að bólusetja þau ung, því sjúkdómurinn er hættulegastur yngstu börnunum. Nýtt kikhóstabóluefni, sem hefur mun minni aukaverkanir í för með sér en eldri bóluefni, var tekið í notkun hér á landi 1. janúar árið 2000.

Mænusótt (Polio)

Mænusótt eða lömunarveiki stafar af veiru sem getur borist í menn með saurmengun, fæðu og vökva og hugsanlega einnig með úðasmiti. Einkenni geta verið væg, en einnig alvarleg vegna lamana sem leitt geta til dauða. Engin lyf eru til sem lækna sjúkdóminn. Með bólusetningum hefur náðst mikill árangur og hefur nánast tekist að útrýma sjúkdómnum úr heiminum. Vonast er til að það markmið náist á næstu árum.

Haemofilus influenzae sjúkdómur af gerð b (Hib)

Haemofilus influenzae b er baktería sem getur orsakað alvarlega sjúkdóma svo sem heilahimnubólgu, barkabólgu, lungnabólgu, blóðsýkingu og liðbólgur. Bólusetning gegn þessarri bakteríu hefur verið mjög árangursrík. Frá því byrjað var að bólusetja gegn Hib hér á Íslandi árið 1989, hefur ekkert tilfelli greinst af heilahimnubólgu eða öðrum alvarlegum sýkingum af hennar völdum, en fyrir þann tíma greindust u.þ.b. 10 börn á ári með heilahimnubólgu af völdum Hib.

Mislingar (Morbilli, measles)

Mislingar stafa af veiru sem er mjög smitandi og berst milli manna með úðasmiti. Einkenni eru mismikil, en sjúkdómurinn getur verið hættulegur og jafnvel valdið dauða. Um það bil 10% þeirra sem sýkjast fá alvarlega fylgikvilla svo sem heilabólgu eða lungnabólgu. Bólusetning gefur fullkomna vörn.

Hettusótt (Parotitis epidemica, mumps)

Hettusótt sem stafar af veiru er oftast mildur sjúkdómur, en er þekktur fyrir að valda alvarlegum fylgikvillum. Heilabólga er algengust fylgikvilla, en aðrir fylgikvillar eru heyrnarskerðing og bólga í eistum, sem getur valdið ófrjósemi. Bólusetning veitir vörn gegn sjúkdómnum.

Rauðir hundar (Rubella)

Rauðir hundar er vægur veirusjúkdómur hjá börnum, en ef ófrísk kona fær sjúkdóminn getur fóstrið skaðast. Fósturskaði getur verið heyrnarskerðing, blinda, vansköpun, vaxtarskerðing og jafnvel fósturlát. Með bólusetningu allra í þjóðfélaginu er hægt hindra faraldra af rauðum hundum og koma í veg fyrir að konur á barneignaraldri smitist.

Meningókokkar C

Meningókokkar C hafa valdið sýkingu hjá um 10-15 einstaklingum árlega á Íslandi. Þeir geta einnig valdið hópsýkingum þar sem mun fleiri sýkjast. Aðallega er hér um að ræða börn yngri en 6 ára og unglinga 10-18 ára. Þessar sýkingar eru mjög alvarlegar þar sem um 10% þeirra sem sýkjast deyja og önnur 20% geta fengið alvarleg örkuml. Búast má við að með almennri bólusetningu megi útrýma meningókokkum C úr þjóðfélaginu. Bólusetningin hindrar hins vegar ekki sýkingar af völdum annarra meningókokka.

Nánari upplýsingar um bólusetningar barna er að finna á vef Landlæknisembættisins.