GlaxoSmithKline Biologicals framleiðir bóluefni gegn fimmtán sjúkdómum sem geta haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild.
Bóluefnadeild GlaxoSmithKline vinnur stöðugt að þróun nýrra bóluefna gegn mörgum algengustu sjúkdómum veraldar, með sérstakri áherslu á þarfir þróunarlanda. 9 af hverjum 10 bóluefnaskömmtum sem fyrirtækið framleiðir er dreift í þróunarlöndum og 6 af hverjum 10 skömmtum eru framleiddir fyrir alþjóðlegar stofnanir til notkunar í stórum bólusetningarherferðum.
GlaxoSmithKline (GSK) hefur þróað bóluefni sem er ætlað til forvarnar gegn leghálskrabbameini og forstigsbreytingum í leghálsi. Til viðbótar við reglubundna krabbameinsleit, þá geta konur nýtt sér þá viðbótarvörn gegn leghálskrabbameini, sem felst í bólusetningu.