GSK.is - forsíða GlaxoSmithKline
astma og ofnæmisvefur

astmi  |  frjókornaofnæmi  |  fæðuofnæmi  |  » barnaexem
gsk.is

Hvað er barnaexem?
 · Orsakir barnaexems
 · Meðferð barnaexems og umhirða húðar
 · Góð ráð við barnaexemi
 · Frekari upplýsingar


astma og ofnæmisfélagið
Astma- og ofnæmisfélagið
Góð ráð við barnaexemi

Hér fylgja nokkur góð ráð varðandi meðferð barna með barnaexem:

Klæðnaður
Mörg börn með exem þola illa klæðnað úr ull og ýmsum öðrum efnum. Flest þola þau hinsvegar bómull. Gætið þess að klæðnaður sé ekki þröngur og gott er að þvo ný föt, sem geta innihaldið mikið af litarefnum eða öðrum efnum (t.d. formaldehýð), nokkrum sinnum áður en þau eru tekin í notkun.

Fæða
Ekki er ástæða til að útiloka einstakar tegundir úr daglegri fæðu barnsins nema fyrir liggi örugg greining á ofnæmi barnsins gagnvart viðkomandi fæðutegund. Takmarkið ekki fæðuval barna nema í samráði við lækni.

Íþróttir
Leyfið barninu að taka þátt í öllum leikjum og íþróttum jafnaldra sinna. Sund í sundlaugum, einkum ef mikið klór er í lauginni, getur aukið þurrk húðarinnar og kláða, en vinna má gegn slíku með notkun rakaaukandi krema eftir bað. Börn með barnaexem geta vel tekið þátt í skólasundi og leikfimi.

Sól og sjóböð
Sól og sjóböð laga oftast exem. Mörgum exemsjúklingum hefur batnað verulega þegar þeir hafa haldið á suðlægar slóðir í fríum.

Hreinlæti og húðumhirða
Það var lengi útbreiddur misskilningur að exemsjúklingar mættu ekki nota of mikið vatn eða sápu. Rannsóknir hafa sýnt að dagleg þrif með vatni og mildri, ilmefnalausri sápu geta dregið úr líkum á húðsýkingum exemsjúklinga.

Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline



Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki