GSK.is - forsíða GlaxoSmithKline
astma og ofnæmisvefur

» astmi  |  frjókornaofnæmi  |  fæðuofnæmi  |  barnaexem
gsk.is

Hvað er astmi?

Lyfjameðferð við astma

Félagslegi þátturinn

Astmi og umhverfið
 · Astmi og híbýli
 · Ryk og innréttingar
 · Svefnherbergið og rúmið

Frekari upplýsingar


astma og ofnæmisfélagið
Astma- og ofnæmisfélagið
Astmi og híbýli

Síðari árin hefur athygli beinst að áhrifaþáttum í nánasta umhverfi astmasjúklinga, á heimili, vinnustöðum, skóla o.s.frv.

Nýjar byggingar á Íslandi eru mjög vel einangraðar, gluggar þéttir og við kyndum hús okkar meira en aðrar þjóðir. Þá skiptir máli að fá svör við spurningum s.s.:

  • er reykt í húsinu?
  • hvernig er hitastig og rakastig íbúðarinnar?
  • eru einhver tæki í híbýlum sem geta valdið astmasjúklingum vandræðum, t.d. ljósritunarvélar eða laser-prentarar?
  • hvernig er loftræstingu háttað? Eru loftskiptitæki yfirfarin og hreinsuð reglulega?
  • er einhver sérstök lykt í íbýlum og hvað veldur henni?
  • er raki í veggjum eða myglusveppir?
  • hvernig er hreinlæti háttað?
Ef grunur leikur á að híbýli geti haft neikvæð áhrif á astmann er þörf fyrirbyggjandi aðgerða.

Raki í híbýlum
Ef rakastig er of hátt í híbýlum okkar getur það aukið líkur á að rykmaurar og myglusveppir þrífist þar, en margir astmasjúklingar hafa ofnæmi fyrir þessum þáttum. Raki getur borist utan frá eða innan og mestur rakinn kemur frá okkur sjálfum eða um 2-5 lítrar af raka á hverja manneskju í íbúð. Rakinn stafar af:

  • útöndun og svita
  • þvotti og þurrkun fatnaðar
  • almennu hreinlæti s.s. böðum
  • matartilbúningi og uppþvotti
  • gróðri í híbýlum
  • ræstingu híbýla
  • o.s.frv
Við þurfum að losna við eitthvað af þeim raka sem myndast í hýbýlum okkar svo rakastig verði ekki of hátt. Merki um of hátt rakastig í híbýlum er m.a.:
  • móða á innanverðum gluggarúðum ef um tvöfalt gler eða einangrunargler er að ræða
  • málning flagnar af við glugga eða mygluvöxtur sést við gluggakistur
  • raki eða mygla í útveggjum kaldari herbergja (baðherbergis, búrs, eldhúss o.s.frv)
  • rakalykt í skápum eða bak við húsgögn
  • rakalykt sem finnst þegar gengið er inn í íbúðina
Auðvelt er að hafa stjórn á rakastigi híbýla. Rakamælar eru ódýrir og ber að reyna að halda rakastigi undir 50% á vetrum og ekki hærra en 60-65% á sumrin. Rakamæla þarf að stilla reglulega, fylgið því leiðbeiningum sem fylgja slíkum mælum.

Til að ná niður rakastigi má t.d.:

  • lofta vel út í u.þ.b. 10 mínútur, þrisvar á dag
  • nota loftræstingu eða gufugleypa við matseld, hafa lok á pottum og reyna að takmarka þær gufur sem berast um íbúðina
  • hafa baðherbergi lokuð meðan baðað er og muna að þurrka vel af öllu eftir baðið og lofta vel út.
  • föt á ekki að þurrka á grind inni í híbýlum manna og þurrkarar verða að vera útbúnir útblástursröri sem gengur út úr híbýlum
  • gott er að forðast stórar pottaplöntur sem þurfa mikið vatnsmagn til vökvunar.

Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline



Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki