![]() |
![]() |
||
» astmi | frjókornaofnæmi | fæðuofnæmi | barnaexem |
|||
|
gsk.is Hvað er astmi? Lyfjameðferð við astma
Félagslegi þátturinn Astmi og umhverfið Frekari upplýsingar
Astma- og ofnæmisfélagið |
Önnur lyf sem notuð eru í astmameðferð
Atrovent (ipratropium) hefur einnig svipuð berkjuvíkkandi áhrif og þau lyf sem fjallað er um í kaflanum um berkjuvíkkandi lyf. Atrovent hindrar viss taugaboð sem aftur kemur í veg fyrir að sléttir vöðvar berkjanna dragist saman. Lyfið er til innöndunar og fæst bæði sem þrýstingsúði og þurrduft til innöndunar. Aukaverkanir eru nánast engar. Læknir getur sagt þér hvort Atrovent er lyf sem gæti hæft sjúkdómsástandi þínu. Slímlosandi lyf eru stundum notuð í astmameðferð. Þessi lyf eiga að minnka slímframleiðslu og gera astmasjúklingum auðveldara með að hósta upp slími úr lungum. Lyfin eru þó oftast notuð ef bronkítis er með í spilinu.
Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline
|
Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki | ![]() |
![]() |