![]() |
![]() |
||
» astmi | frjókornaofnæmi | fæðuofnæmi | barnaexem |
|||
|
gsk.is Hvað er astmi? Lyfjameðferð við astma Félagslegi þátturinn Astmi og umhverfið Frekari upplýsingar
Astma- og ofnæmisfélagið |
Astmi og íþróttir
Áreynsluastma þekkja flestir astmasjúklingar. Astmaeinkenni koma oft í ljós innan nokkurra mínútna eftir að þú reynir á þig líkamlega. Slík einkenni geta verið býsna kröftug. Ekki er vitað nákvæmlega hvað veldur áreynsluastma. Vitað er að áreynsla í köldu lofti veldur oft meiri einkennum en áreynsla í hlýju og röku lofti. Sund er t.d. góð hreyfing fyrir flesta astmasjúklinga og veldur sjaldan áreynsluastma. Nokkrir astmasjúklingar með ofnæmi eiga þó erfitt með að þola klórinn í sundlaugum. Með hjálp þeirra astmalyfja sem nú bjóðast geta langflestir astmasjúklingar tekið þátt í íþróttum og öðrum líkamlega krefjandi störfum rétt einsog annað fólk. Áríðandi er að taka berkjuvíkkandi, innönduð lyf nokkrum mínútum áður en áreynsla hefst og þá geta lyfin verndað gegn áreynsluastma í nokkrar klukkustundir. Núorðið fást lyf sem geta veitt vernd gegn áreynsluastma í allt að 12 klst. Margir astmasjúklingar stunda íþróttir af kappi, jafnvel sem keppnisíþróttir. Það á að heyra sögunni til að astmaveik börn geti ekki tekið þátt í leikjum annarra barna eða megi ekki vera í leikfimi eða íþróttum. Nokkrar grunnreglur þarf þó að hafa í huga varðandi áreynslu, einkum hvað varðar astmaveikt fólk:
Frekari upplýsingar um hvaða lyf er óleyfilegt að nota í tengslum við æfingar eða keppni í íþróttum og reglur um lyfjaeftirlit í íþróttum er að finna á vefsíðum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline
|
Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki | ![]() |
![]() |