![]() |
![]() |
||
» astmi | frjókornaofnæmi | fæðuofnæmi | barnaexem |
|||
|
gsk.is Hvað er astmi? Lyfjameðferð við astma Félagslegi þátturinn Astmi og umhverfið Frekari upplýsingar
Astma- og ofnæmisfélagið |
Hvernig má greina hvort ég er með astma?
Svo læknar geti sem best greint hvort þú sért með astma er góð sjúkrasaga nauðsynleg:
Ein mikilvægasta rannsóknin er að mæla lungnastarfsemi með s.k. blástursprófum. Til að fullvissa sig um að um astma sé að ræða, kann að vera nauðsynlegt að mæla lungnastarfsemi kvölds og morgna á nokkurra daga tímabili svo læknir geti metið sveiflur í lungnastarfseminni. Læknar mæla stundum lungnastarfsemi fyrir og eftir skammt af berkjuvíkkandi lyfjum. Hækki blástursgildi um meira en 15-20% eftir að slík lyf hafa verið tekin, bendir það til þess að um astma sé að ræða. Einnig er hægt að mæla ertni lungnaberkjanna með s.k. áreitiprófum. Þá er sjúklingur látinn anda að sér efni sem ertir lungun og síðan er lungnapróf framkvæmt. Hafir þú viðkvæm lungu fellur lungnastarfsemi þín við miklu minna áreiti en gerist hjá heilbrigðum. Slík áreitipróf geta einnig gefið vísbendingu um hve erfiður sjúkdómurinn er.
Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline
|
Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki | ![]() |
![]() |