![]() |
![]() |
||
» astmi | frjókornaofnæmi | fæðuofnæmi | barnaexem |
|||
|
gsk.is Hvað er astmi? Lyfjameðferð við astma Félagslegi þátturinn Astmi og umhverfið Frekari upplýsingar
Astma- og ofnæmisfélagið |
Mismunandi form astma
Næturastmi Þjáist þú af tíðum astmaeinkennum að nóttu til bendir það til þess að astminn sé ekki nægilega vel meðhöndlaður eða að þú takir ekki astmalyfin þín einsog til er ætlast. Ráðfærðu þig við lækni og tryggðu að þú hafir rétt lyf og að þú kunnir nægilega vel á lyfjaformin sem þú notar, svo lyfin berist örugglega til lungnanna. Einnig getur verið gott að mæla lungnastarfsemina með s.k. blástursmælingum. Það auðveldar lækninum að gera sér grein fyrir lungnastarfsemi þinni að nóttu og degi.
Astmi af völdum sýkinga. Sýkingar geta einnig ýft upp astmaeinkenni hjá fullorðnum, áhrifin eru þau sömu, aukin ertni berkjanna. Eftir sýkingar getur þú fundið fyrir astmaeinkennum, oftast hósta, í vikur eða mánuði. Ráðfærðu þig við lækninn fáir þú alltaf langvarandi einkenni eftir kvefpestir eða öndunarfærasýkingar. Hugsanlega er hægt að beita fyrirbyggjandi lyfjameðferð svo að astmaeinkennin verði vægari og vari skemur.
Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline
|
Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki | ![]() |
![]() |