![]() |
![]() |
||
» astmi | frjókornaofnæmi | fæðuofnæmi | barnaexem |
|||
|
gsk.is Hvað er astmi? Lyfjameðferð við astma Félagslegi þátturinn
Astmi og umhverfið Frekari upplýsingar
Astma- og ofnæmisfélagið |
Astmi og ofnæmi, tengd atvinnu eða starfsgreinum
Gegnum starf okkar komumst við oft í snertingu við ýmis efni sem eru annars ekki þáttur í heimilislífi okkar eða frístundum. Iðnaður notar margvísleg efni og efnasambönd sem geta aukið hættu á atvinnutengdum sjúkdómum, þar meðtöldum astma. Oft getur reynst erfitt að finna orsakavaldinn fyrir astmaeinkennum á vinnustað. Þetta er t.d. vegna þess að oft setjum við ekki einkennin í samband við starfið þar sem þau koma ekki alltaf fram fyrr en eftir að vinnu lýkur eða að nóttu til.
Áhættustörf
Það eru vissulega störf sem geta talist sérstök áhættustörf í þessu tilliti en hér verða einungis nokkur slík nefnd: Störf við logsuðu, á rakara- og hárgreiðslustofum, bakarastörf, störf í landbúnaði og fiskvinnslu, einkum skelfiskvinnslu og ýmis störf í matvæla- og efnaiðnaði. Teljir þú að einhverjir þættir tengdir starfi þínu geri astmann verri skalt þú ráðfæra þig við lækni. Sjúkrasaga er mikilvæg við að greina starfstengdan astma. Reyndu að halda dagbók yfir störf og efni sem þú umgengst, það getur hjálpað til við að finna orsakavaldinn. Fylgstu einkum með eftirfarandi atriðum:
Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline
|
Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki | ![]() |
![]() |