GSK.is - forsíða GlaxoSmithKline
astma og ofnæmisvefur

» astmi  |  frjókornaofnæmi  |  fæðuofnæmi  |  barnaexem
gsk.is

Hvað er astmi?

Lyfjameðferð við astma

Félagslegi þátturinn
 · Astmi og sálarlífið
 · Astmi og skólinn
 · Astmi, ofnæmi og vinnustaðir
 · Astmi, ofnæmi og fríið
 · Atvinna og starfsgreinar
 · Val astmasjúklinga á störfum

Astmi og umhverfið

Frekari upplýsingar


astma og ofnæmisfélagið
Astma- og ofnæmisfélagið
Astmi, ofnæmi og fríið

Fólk með ofnæmi og astma getur átt eins góð frí og allir aðrir, bæði hér á landi og erlendis. En það getur kallað á betri undirbúning séu þessir sjúkdómar til staðar. Sýna verður örlítið hyggjuvit við val á ákvörðunarstað. Þú veist best hvað þú þolir og hvað er ekki heppilegt.

Astmaveikt fólk með gróðurofnæmi ætti að forðast að vera á ferðinni á stöðum þegar ofnæmisvaldar eru í hámarki í andrúmsloftinu, fólk með ofnæmi fyrir dýrum ætti að tryggja að gæludýr séu ekki leyfð á hótelum sem valin eru o.s.frv. Fæðuofnæmi getur hugsanlega ráðið einhverju um val á stað sem ferðast er til.

Nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga:

  • Mundu að hafa ávallt nægar birgðir lyfja með þér í fríið. Stundum getur verið ráðlegt að ráðfæra sig við lækni um hvort breyta þurfi lyfjameðferðinni eitthvað áður en haldið er af stað.
  • Hafðu með þér lista yfir lyfin þín, á tungumáli viðkomandi lands eða á ensku. Læknar og lyfjafræðingar í útlöndum ættu að geta hjálpað þér ef þeir vita nákvæmlega hvaða lyf þú þarft.
  • Astmasjúklingar, sem þurfa að nota innúðavélar, ættu að gæta þess að þær séu gerðar fyrir þann rafstraum sem notaður er í því landi sem ferðast er til.
  • Þegar komið er á áfangastað er gott að gera sér strax grein fyrir hvar hægt sé að ná í lækni. Skrifaðu hjá þér nafn læknis og símanúmer og láttu fararstjóra og/eða ferðafélaga vita um sjúkdómsástand þitt, ef um hópferð er að ræða.
  • Kynntu þér neyðarnúmer viðkomandi lands ef þess kynni að verða þörf.

Astma- og ofnæmisvefur GlaxoSmithKline



Um persónuvernd | Almennir skilmálar | Um vörumerki