GlaxoSmithKline býður vörur og þjónustu til að greina, koma í veg fyrir og meðhöndla sjúkdóma. Lyfseðilsskyld lyf fyrirtækisins sem heilbrigðisstarfsfólki er ætlað að nota eru undir eftirliti stjórnvaldsstofnana í öllum löndum þar sem fyrirtækið á í viðskiptum, t.d. Lyfjastofnun á Íslandi, Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna og Nefnd um öryggi lyfja á Bretlandi. Reglugerðir þeirra takmarka oft hvaða upplýsingar um ávísun lyfja má veita almenningi og þess vegna þarft þú að ráðfæra þig við heilbrigðisstarfsmann. Þú gætir líka þurft að fara á vefsíður annarra heilbrigðisstofnana til að fræðast meira um lyfseðilsskyld lyf.
Þessar vefsíður hafa verið þróaðar sem liður í þjónustu GlaxoSmithKline. Rétt eins og hver önnur þjónusta og þrátt fyrir bestu viðleitni okkar gætu upplýsingar á þessum vefsíðum orðið úreltar þegar frá líður. Ekki má túlka neitt á þessum vefsíðum sem ráðleggingu eða meðmæli og ekki ætti að byggja á því neina ákvörðun eða aðgerðir. Mikilvægt er að þú treystir aðeins á ráð heilbrigðisstarfsmanns um þínar sérstöku aðstæður. GlaxoSmithKline ber enga ábyrgð á hversu réttar eða tæmandi upplýsingarnar á þessum vefsíðum eru eða á notkun þeirra, né ábyrgð á uppfærslu þeirra. Þetta efni er sett fram „Í ÞVÍ ÁSTANDI SEM ÞAÐ ER“ ÁN NOKKURS KONAR ÁBYRGÐAR, HVORKI TILGREINDRAR EÐA ÓBEINNAR, ÞAR MEÐ TALIÐ EN EKKI TAKMARKAÐ VIÐ, HINAR ÓBEINU ÁBYRGÐIR UM SELJANLEIKA, HÆFI Í SÉRSTÖKUM TILGANGI, EÐA BROTALEYSI. Í sumum lögsagnarumdæmum er ekki heimilt að undanskilja óbeina ábyrgð og því gæti ofangreind takmörkun ekki átt við um þig.
Frá þessum vefsíðum, sem hýstar eru í Bandaríkjunum, er hægt að tengjast öðrum vefsíðum á internetinu, þar með taldar vefsíður félaga tengdum GlaxoSmithKline í öðrum löndum. GlaxoSmithKline getur ekki borið ábyrgð á upplýsingum sem eru á vefsíðum þriðja aðila sem fyrirtækið ræður ekki yfir. Þó GlaxoSmithKline reyni að leggja aðeins til tengla á vefsíður þriðju aðila sem fara að öllum viðeigandi lögum og reglugerðum sem og að stöðlum GlaxoSmithKline, skal bent á að innihald vefsíðna þessara þriðju aðila getur tekið breytingum án þess að GlaxoSmithKline sé gert viðvart. Við getum því ekki borið ábyrgð á og göngumst ekki við neinni ábyrgð á neinum upplýsingum eða skoðunum sem eru á vefsíðum einhvers þriðja aðila.
Ekkert á þessum vefsíðum telst vera boð eða tilboð um að fjárfesta eða eiga viðskipti með verðbréf eða ADR (American Depository Receipt) GlaxoSmithKline. Það á einkum við um raunverulegar niðurstöður og þróun að slíkt getur verið efnislega ólíkt öllum spám, skoðunum eða væntingum sem fram eru settar á þessum vefsíðum og ekki má treysta á hvernig verðið á verðbréfum hefur verið sem vísbendingu um hvert verð þeirra verður í framtíðinni.