Ísland

Aðgengi að vefsíðunum

GlaxoSmithKline gerir sér far um að vefsíður fyrirtækisins séu aðgengilegar öllum, óháð fötlun.

Aðgengislyklar

Aðgengislyklar eru lyklaborðsskipanir sem veita beint aðgengi að tilteknum vefsíðum, án þess að nota músina.

Til að fara á síður með aðgengislyklum þarf að:

  • Windows: Halda niðri 'Alt' takkanum og viðkomandi aðgengislykli, styðja síðan á 'Enter' takkann
  • Macintosh: Halda niðri 'Ctrl' takkanum og viðkomandi aðgengislykli

Athugið: Aðgengislyklar virka aðeins í Microsoft Internet Explorer 4 eða nýrri útgáfum og Netscape 6 eða nýrri útgáfum.

Þessar vefsíður fylgja breskum stöðlum um aðgengislykla:

1 - Forsíða

2 - Fréttir og greinar

3 - Vefkort

4 - Ítarleg leit

5 - Um fyrirtækið

6 - Lyf GSK

7 - Upplýsingar um sjúkdóma

8 - Almennir skilmálar

9 - Hafið samband

0 - Aðgengi að vefsíðunum

S - Sleppa valmyndum

Myndir

Allar myndir á þessum vefsíðum hafa lýsandi ALT undirtexta.

Leiðakerfi

Á öllum vefsíðunum eru tenglar á forsíðu (aðgengislykill 1), vefkort (aðgengislykill 3) og leitarsíðu (aðgengislykill 4).

Á sumum vefsíðunum er hægt að sleppa valmyndum (aðgengislykill S), til að auðvelda notkun þeirra í einföldum vefskoðurum sem byggja fyrst og fremst á texta (screen readers and text-only browsers). Ef valið er að sleppa valmyndum flyst notandinn beint í aðalefnisinnihald síðunnar, en sleppir valmyndum efst á henni og til hliðar.

Leitast hefur verið við að halda góðu innbyrðis samræmi í leiðakerfinu, til að tryggja skýrar og greiðar leiðir milli vefsíðnanna.

Vefkort

Hægt er að styðjast við vefkort af gsk.is (aðgengislykill 3) til að ferðast um vefsíðurnar.

PDF skjöl

Á þessum vefsíðum eru PDF skjöl stundum birt í HTML útgáfu. Ef þú kýst frekar að nota PDF lesara til að skoða PDF skjöl, getur þú fengið frekari upplýsingar á vefsíðum Adobe.