Iceland

Frétt | 25. janúar 2008

Dregur úr nýgengi brjóstakrabbameins og dánartíðni lækkar

Málþing um nýjungar í meðferð brjóstakrabbameins var haldið á Læknadögum 24. janúar. Í erindi Helga Sigurðssonar, yfirlæknis og prófessors í krabbameinslækningum, kom fram að svo virðist sem dregið hafi úr nýgengi brjóstakrabbameins á Íslandi og dánartíðni af völdum þess hafi lækkað. Líkur þess að kona sé á lífi eftir fimm ár frá greiningu brjóstakrabbameins eru um 95%, sem er það hæsta í Evrópu. Þennan góða árangur virðist mega rekja til tveggja þátta, annars vegar skimunar gegn brjóstakrabbameini og hins vegar bættrar lyfjameðferðar. Einnig kom fram, að sú breyting er að verða á meðferðinni, að í stað þess að reyna að uppræta krabbameinsvöxtinn með öllum tiltækum ráðum, er nú horft til þess að halda honum í skefjum og meðhöndla hann sem langvinnan, krónískan sjúkdóm.

Að loknu erindi Helga fjallaði Óskar Þór Jóhannsson, krabbameinslæknir á LSH, um svokallaða "viðtakaháða meðferð" sem hefur verið að ryðja sér til rúms með nýjum og sérhæfðari krabbameinslyfjum. Í viðtakaháðri meðferð er byrjað á því að rannsaka hvort krabbameinið sem til meðferðar er hafi tiltekin einkenni eða viðtaka og síðan tekur lyfjameðferðin mið af því hvaða lyf virka mögulega fyrir viðkomandi sjúkling.

Síðasti fyrirlesarinn á málþinginu var dr. Jens Huober, prófessor í krabbameinslækningum við Kantonspítalann í St. Gallen í Sviss. Hann fjallaði um niðurstöðu rannsókna á lapatiníbi (Tyverb®) gegn brjóstakrabbameini, en Tyverb® hefur áhrif á krabbameinstengda viðtaka inni í frumum og er að því leyti ólíkt öðrum lyfjum í sama flokki sem virka á viðtaka á yfirborði krabbameinsfruma. Þessi eiginleiki er m.a. talinn útskýra áhrif lyfsins á meinvörp í heila. Tyverb® hefur nýlega fengið meðmæli sérfræðinganefndar Evrópsku lyfjastofnunarinnar og er væntanlegt á markað hér á landi innan skamms. Lyfið var samþykkt til notkunar í Sviss og Bandaríkjunum á síðasta ári.

Validate this page with W3 XHTML Standards | Validate this page with W3 CSS standards